Hér koma lögin 17 sem keppa í fyrri undankeppninni þann 25. maí. Ég set inn umsagnir um þau fljótlega.
- Moldova - Run Away/Sunstroke Project & Olia Tira. Þau virðast hafa fengi ð Friðrik Ómar til að spila fyrir sig á fiðluna. Annars alveg hundmáttlasut Europopp. Það væri vel hægt að spyrða þessu lagi saman við íslenska lagið og enginn myndi fatta muninn. Sungið á ensku.
- Rússland - Lost And Forgotten/Peter Nalitch & Friends. Mjög þjóðlegt (á rússneskan máta). Gerir ekkert fyrir mig en það gæti alveg gert sig í keppninni. Sungið á ensku. Kemst áfram.
- Eistland - Siren/Malcolm Lincoln. Mér finnst þetta töff lag. Öðruvísi. Ekki þetta týpíska Eurovision. Samt ekki viss um að það nái eyrum Evrópubúa. Sungið á ensku.
- Slóvakía - Horehronie/Kristina Pelakova. Algjörlega eftir formúlunni. Svo sem ágætt sem slíkt en mér finnst ég hafa heyrt það áður. Fá plús fyrir að syngja á móðurmálinu. Kemst áfram.
- Finnland - Työlki Ellää/Kuunkuiskaajat. Mjög töff lag í klezmer stíl. Frábært að heyra finnskuna sungna. Kemst áfram.
- Lettland - What For?/Aisha. Ekkert að laginu sjálfu en söngkonan er hrikaleg og vantar alla tjáningu. Vona að hún verði skárri á sviðinu í Osló. Sungið á ensku.
- Serbía - Ovo Je Balkan/Milan Stanković. Já, nei, nei. Ekki að gera sig. Ekki orð um það meir (ekki heldur um útlit söngvarans). Sungið á serbnesku. Kemst áfram.
- Bosnía & Herzegóvína - Thunder and Lightning/Vukašin Brajić. Arfaslakt og leiðinlegt. Sungið á bosnísku. Kemst áfram.
- Pólland - Legenda/Marcin Mroziński. Óskaplega dapurlegt lag og dapurt yfir höfuð bara. Textinn ekki til að laga það. Sungið á ensku.
- Belgía - Me And My Guitar/Tom Dice. Alveg ágæt sæt, lítil ballaða. Gaman að hafa svona gítarlag með til tilbreytingar. Greinilegt að James Blunt er í uppáhaldi hjá Tom. Sungið á ensku.
- Malta - My Dream/Thea Garrett. Algjörlega hefðbundin lagasmíð frá Möltu. Spurning hvort draumurinn verði að veruleika í þetta sinnið. Held samt ekki. Sungið á ensku. Kemst áfram.
- Albanía - It's All About You/Juliana Pasha. Jújú, gæti vel virkað. FIðlusólóið er samt alveg skelfilegt. Sungið á ensku. Kemst áfram.
- Grikkland - OPA/Giorgos Alkaios & Friends. Æ, er tyrkneski takturinn ekki kominn úr tísku? Syngja á grísku sem er ágætt útaf fyrir sig. Kemst áfram.
- Portúgal - Há Dias Assim/Filipa Azevedo. Voða Disneylegt allt saman. Myndi algjörlega sóma sér sem titillag í teiknimynd þó lagið sé nú eiginlega bara krapp. Sungið á portúgölsku.
- Makedónía - Jas Ja Imam Silata/Gjoko Taneski. Hálf misheppnað. Einu skiptin sem maður heyrir laglínu er í viðlaginu. Rappkaflinn líklega skástur. Ægilegur gítarsólókafli í lokin. Sungið á makedónísku.
- Hvíta-Rússland - Butterflies/3+2. Ég fæ nú bara gæsahúð af þessu. Væmninni eru engin takmörk sett. Ekki alslæmt þó. Sungið á ensku. Kemst áfram.
- Ísland - Je Ne Sais Quoi/Hera Björk. Ég er ekki hrifin af þessu framlagi okkar íslendinga í ár. Mér finnst leiðinlegt að senda svona endurunnið eurotrashpopp þegar við eigum mun frambærilegri og einstakari tónlistarmenn í landinu. Ætla samt að halda með Íslandi. Sungið á ensku. Kemst áfram.

0 athugasemdir:
Sendu inn athugasemd